Personal interest map
Kári Jóhannsson
Samantekt
Ég missti af tímanum þegar hraðskriftaræfingarnar voru en vonandi meikar þetta sens, hér er greining á verkum sem ég hef gert í þessu námi.
Ég tek eftir að ég enda oft með að nota hráefni sem átti að vera farga hér á landi en það er bara það sem okkur var kennt. Fyrsta verkefnið sem ég gerði var lampi sem ég gerði úr afgangsvírum frá rafvirkjanemum í FB, og skötuskinnið er eiginlega framhald af því. Mér finnst skrítið hvað miklu er hent, sérstaklega í sjávarútvegi sem er eitt af okkar stærstu geirum hér á landi.
Ég nota mikið af tækni eins og þrívíddarprentara, CNC og laserskera, og í Digirack fór ég alveg yfir í hugbúnað, tölvusjón og að nota gervigreind. Mér finnst skemmtilegast þegar eitthvað sem byrjar í tölvunni endar sem hlutur sem ég get haldið á.
Síðan er ég mikið að hugsa um að hlutir passi saman. Verkfærin í rekkanum, flísarnar sem raðast eftir stærð á pottum og öðrum eldhús dóti, mótin fyrir mismunandi stærðir af skötu. Ég hanna frekar kerfi eða einingar en einn stakan hlut.
Helstu þemu: fullnýting, íslenskt hráefni, stafræn framleiðsla, kerfi og einingar, náttúran.
Hugleiðing um mig sem hönnuð
Ég held að ég sé hönnuður sem hefur jafn gaman af verkstæðinu og tölvunni. Þegar ég var að vinna með skötuskinnið var ég að prófa mig áfram með sápu, olíu og mót og vissi oft ekki hvað myndi gerast. Digirack var allt annað. Þar var ég að skrifa kóða með hjálp Claude og prófa aftur og aftur þangað til forritið náði útlínunum rétt. Samt var þetta í grunninn það sama, að reyna að skilja hvernig efnið eða kerfið virkar og fá það til að gera það sem ég vil.
Mér finnst mikilvægt að hönnun leysi eitthvað raunverulegt. Mér líkar að geta sagt að um 420 tonnum af skötu sé hent á ári og að verkefnið mitt sé tilraun til að gera eitthvað við það, þó að það sé lítið skref og bara vonandi gæti það verið lausn.
Ég á það til að fara beint í tæknilegu lausnina og hugsa minna um hvort að það sé í raun besta lausnin. Það er eitthvað sem ég vil vinna meira í.
Fyrir BA verkefnið langar mig að tengja stafræna heiminn og raunheiminn betur saman og skoða biomimicry, hvernig náttúran leysir hlutina. Ég er ekki kominn með endanlega hugmynd en ég sé fyrir mér að nota það sem ég lærði í Digirack, tölvusjón og röðun, á eitthvað náttúrulegt eins og skötuskinnið.
Verkefni úr náminu
Digirack Vefforrit sem býr til verkfærarekka. Maður tekur mynd af verkfærunum á taflborðsbakgrunni, forritið finnur útlínurnar og raðar þeim á plötu. Útkoman er SVG eða DXF skrá sem fer beint í CNC eða laserskera, og hvert verkfæri fær sitt hólf. Gert með aðstoð Claude.
Skötuskin Lampaskermar úr skinni af skötu, sem er yfirleitt hent. Skinnið fer í sápubað og olíubað, svo í mót og er þurrkað þar til það verður eins og leður. Mótin eru í nokkrum stærðum svo hægt sé að nota skinn af mismunandi stórum skötum. Efni: skötuskinn, lerki, ál. Mótin þrívíddarprentuð.
Viðarpúsl Flísar úr íslensku lerki sem virka sem hitaplatti, glasamotta eða kertastjaki. Þær raðast saman eftir stærð pottsins. Unnið í CNC, laserskera og fræsiborði.
Blómapottslampi Lampi úr afgangsvírum sem rafvirkjanemar í FB gáfu mér.
INSPÓ:
Antoni Gaudi: Markmið: Form sem eru rétt út frá náttúrunni og eðlisfræðinni, ekki bara útlitinu.
Tenging við mig: Náttúrulegt ferli finnur formið, sem er biomimicry og tengist hugmyndinni minni. Notaði mikið af afgans hráefni sem dæmi flísar.
Carl Beutard Markmið: Að komast nær raunveruleikanum og náttúrunni í stað þess að einfalda hana.
Tenging við mig: Hann sýnir að eitthvað sem er hent, eins og hýði, getur haft byggingarlega eiginleika, svipað og skötuskinnið. Skalabreytingin vekur hugmynd um að mæla náttúruleg form stafrænt og stækka þau
Þrátt fyrir þessi inspó væri ég til í að gera eitthvað með function.
Honarable mentions, Jonas Hejduk