Hvað skiptir þig máli?
Hvað veitir þér gleði?
Hvað gerir þig reitt?
Hvað veitir þér innblástur?
Hvernig finnst þér gaman að skapa - í efni, texta, myndbönd, skissur, tölvu?
Hvaða styrkleika hefur þú í hönnun?
Hvaða færni langar/þarft þú mest að bæta í hönnun?
Hvaða væntingar varst þú með þegar þú skráðir þig í námið?
Hvernig vilt þú vinna í framtíðinni?
Við hvernig aðstæður skapar þú best?
Hvernig hefur þú þróast sem hönnuður?
Hvaða verkefni naust þú mest að vinna við?
Hvaða hönnuða horfir þú helst til?
Skrifaðu hugleiðingu um þig sem hönnuð.
1. Aðferð sem ég vill nota eða bæta í BA verkefninu, ég væri allavega til í að læra á eitthvað super praktískt program eins og AutoCad og læra að gera kannski eitthvað robotics mögulega en samt ekki eitthvað super duber technical.
2. Það sem skiptir mér máli er að alltaf að reyna mitt besta sama hvað og ,,treat others like you would like to be treated’’. Ég elska skapa eitthvað nýtt og reyna alltaf að vanda mig sem mest við að gera þann hlut, ég á til með að vera perfectoinisti en þarf stundum bara segja ,,good enaugh’’ sem er frekar erfitt.
3. Það sem veitir mér gleði er að láta fólk brosa eða hlæja, búa til eitthvað fyrir fólk, gefa þeim úthugsaðar gjafir. Kærastan mín og vinir veita mér mikla gleði, ég elska líka dýr þau geta alltaf látið mann brosa sama hversu erfiður dagurinn var. Ég hef mikinn áhuga á tölvuleikjum og að klifra sem er geggjað.
4. Það sem gerir mig reiðan er frekar erfitt að pæla í, það er mjög erfitt að gera mig reiðann. Kannski bara þegar fólk trúir ekki á mig, hálvitar í umferðinni. Fólk sem smjattar hátt.. veit ekki. Fólk sem heldur að það sé eitt í heiminum.
5. Það sem veitir mér innblástur er kannski bara bækur sem ég er að lesa, sem eru aðalega einhverjar fantasíu bækur eins og Stormlight Archive eða Red Rising. Ég fæ oft innblástur á að bara prófa mig áfram í einhverju sem ég hef aldrei gert, reyna á einhverja ,,vöðva‘‘ sem ég hef ekki æft áður eins og fyrir Frostmark verkefnið að henda mér í sauma skap eða þegar ég ákvað að vinna með skötu þrátt fyrir að hata að vera í kringum fisk. Það er samt ekki mjög létt að hoppa bara í djúpu laugina (maður gæti drukknað)/ gefist upp. En ég á mjög erfitt með að gefast upp.
6. Ég byrja oftast með að skissa í bók, ég er búinn að fylla nokkrar í þessu námi. Þegar ég næ ekki alveg að ímynda mér hlutinn perfect fer ég oft í Blender og hendi upp einhverju fljótt. En það endar alltaf sem svo einhver áþreifanlegur hlutur, því ég vill alltaf enda með eitthvað í raunheimum, það er mikið skemmtilegra en bara eitthvað fully digital.
7. Mínir styrkleikar eru að ég er fullur af hugmyndum, sem þýðir samt ekki alltaf að þér séu góðar en það er allavega eitthvað í gangi constantly í kollinum mínum. Ég er góður að teikna, mála, grafísk, 3d, skúlptúr og núna smá að sauma. Kann að láta gervigreind gera leiðilegu hlutina fyrir mig. Kann á allskonar tól og tæki í digital og raunheimnum.
8. Úff það sem ég er verstur í er að tjá mig, í persónu. Ég gjörsamlega hef gert það en það sökkar enþá jafnt mikið eða svipað mikið. Taka viðtöl hata ég, hringja í einhvern sökkar. Muna hluti. Ég væri líka til í að vera betri að researcha, ég hata að lesa. Ég vill bara búa eitthvað til.
9. Þegar ég skráði mig í námið var ég meira að pæla í einhverju tæknilegra og praktískara, það er mikil áhersla á að ,,bjarga heiminum‘‘. Ég hélt meira að við værum að fara búa til einhverjar söluvörur. Ég er samt ekki ásáttur við hvað ég hef fengið úr þessu námi.
10. Í framtíðinni væri ég til að vera með vinnu sem ég er annaðhvort að búa til eitthvað sjálfur og selja. Það væri samt líka mjög nice að vinna hjá einhverju fyrirtæki sem er hönnunar tengt og ég væri þá með stabíla vinnu, því lífið greinilega snýst um pening. Ef ég væri að selja mínar eigin vörur það væri draumurinn og mögulega bara að hanna þær og láta einhvern annan búa þær til eða bara gera easily producable góða vöru.
11. Ég skapa best þegar ég hef áhuga á því sem ég er að gera. Ég vinn best með að vera 50/50 í tölvunni og raunheimnum. Vinna einn er nice, þetta hópverkefni var struggle. Ég vinn oft best þegar ég er að búa til eitthvað fyrir einhverja manneskju og varan hefur einhvern tilgang.
12. Ég hef þróast með, hmmm hef ég gert það? Cant perfect perfection. Djók veitt ekki. Ég hef lært mikið af aðferðum sem hafa alltaf gert verkefnin mín betri og betri. Gervigreindar áfanginn breytti miklu, ég get sparað svo mikið af tíma í skemmtilegri hluti en líður smá eins og ég sé latari.
13. Ég hafði mjög gaman af skötuverkfninu en ég held að DigiRack lét mig hafa mest gaman yfir höfuð, mögulega því þá þurfti ég ekki að stökkva ofan í djúpu laugina ég var bara í heitapottinum allan tímann, en það er kannski ekki besta leiðinn til að þróa sig áfram.
14. Ég þarf virkilega að bæta mig í að horfa á aðra hönnuði, ég er svo lítið að pæla í hvað aðrir eru að gera nema það sé bara bókstaflega fyrir framan mig. Það er enginn sem ég er bara eitthvað ,,vá‘‘ ég væri til að gera eitthvað svona. En það er örugglega 100% einvhver þannig hönnuður fyrir mig. Piet Hein EEk er cool ég fíla hans stuff en er ekki mikið að fylgjast eitthvað með hvað hann er að gera right now, er ekki einu sinni að followa hann. (skal gera það)
15. Ég sem hönnuður er alltaf að reyna tækla eitthvað vandamál með praktík og sú vara er alltaf vönduð og úthugsuð. Ég enda oft með að hugsa um lampa ég veit ekki afh það gerist bara. Ég elska praktík og búa til eitthvað sem er áþreifanlegt og reyna að gera þá eins fallega og vandaða og ég get.